Rímur af Hvanndalabræðrum: Önnur ríma

Stikluvik hálfdýrt

1
Letra fer ég ljóða sjóð
lítt þó menntin prýði
ef að hér á hróðar þjóð
hlýða gerir rjóð og góð.

2
Skáldin áður all mörg þar
Ísa hér á landi
orð með fjáðu fegurðar
fjölda kváðu rímurnar.

3
Norður landi nýtur í
Níels skáldi forðum
bráins sanda börin frí
bragi vanda kunni því.

4
Lands um býin Breiðfjörðar
bragnar rímum hrósa
því að frían blóma bar
braga gígjan Sigurðar.

5
Hannes prestur heiður bar,
hann fyr bjó á Rípi,
hökla mesti meiður þar
mærðar besti smiður var.

6
Greppur fríður gáfur bar,
Gísli Konráðs niður,
kunni smíða fjalars far
fágað prýði málsnilldar.


  1. Árni knái Böðvars bur
    Bóndi á Ökrum náði
    ljóða háa list meður
    landa bráins apaldur.

8
Odda freyrar þreknir þá
þessir rímur kváðu
og ótal fleiri foldu á
fræða heyrast létu skrá.

9
Núna fáir fróni á
fyrðar rímur kveðaL
en ég má því mennt er lá
mansöng knáan enda þá.


10
Hrökkva vírinn vísna þar
vann í þagnar snurðu
sem að hlýrar hart á mar
hleyptu dýri sænornar.

11
Dyggða kransi krýndur frí
kátur Bjarni náði
láta stanslaust stjórnvöl því
storðum dansa gullhrings í.

12
Rennur gnoð um saltan sjá
síðum voðum undir,
springa boðar brjóstum á,
borð um froðan sýður grá.

13
Austan vindur anda má
ægis dætur vakti,
yfir lindann landa blá
Lyngvi syndir banda þá.

14
Feikna stormi fylgja vann
fjúk og dimma mikil,
rennsli formar, ferðum ann
flæða ormur sels um rann.

15
Fálka ströndu mætri með
mátti stýra Bjarni,
lægis önd um laxa beð
lengi vönduð fljúga réð.

16
Hraustur þandi hræsvelgur
húna mjúku dúka
um skeljungs landið skrautlegur
skeiðaði banda víshundur.

17
Um hvals breiðu ekrurnar
orguðu ránar jóðin,
herti skeiðið hlunna mar,
hljóðuðu reiða snúrurnar.

18
Ára gildi gotinn hér
gekk svo tvö um dægur
en sofna vildi vaskir sér
vafðir snildum bræðurner.

19
Vann og hlýra væna um
vitja dauðans bróðir,
Einar stýrir áköfum
ýsu mýra hestinum.

20
Bjarni og Jón þeir sofna sér,
seglið fast var bundið,
ára ljónið áfram ber
yfir frónið stökkuls hér.

21
Einn við stýrið Einar sat
aðeins hálfvakandi
sels um mýri (sigar mat)
súða dýrið runnið gat.

22
Létta réði líka frá
leiða dimmviðrinu,
sendi gleði sólin há
sínum meður geislum þá.

23
Komin hún í vestur var,
vofna börinn lítur
til austurs núna orku snar
yfir túnið sljettbaks þar.

24
Eitthvað hvítt þar seggur sá,
samt ná hélt það væri
hafskip nýtt með reiða og rá
ramba vítt um löginn blá.

25
Þegn sér brátt að það ei var
þóftu nokkur goti
en bjarg er knátt við kaldan mar
Kolbeins hátt á eyju þar.

26
Fofnis vega freyrinn sá
fagra Kolbeinseyju,
risu ótrega tindar þá
tignarlega upp úr sjá.

27
Fríða vífið Valgautar
var af fugli þakið,
lundur hlífa leit á þar,
líkt og fífu bingur var.

28
Einar bræður þæga þá
þrekinn vekja gáði,
seglin græðis úlfi á
ullar klæða saman slá.

29
Síðan ára tóku til
tírar hraustir skjóma
úðar klárinn óð með skil
yfir báru djúpan hyl.

30
Upp í drógu ey varið
en þó stormur væri,
títt um gróið geddu mið
gjörði flóa hreindýr skrið.

31
Hlýrar og nú árarnar
í hring boga sveigja
áfram toga öldurnar
yfir voga keilunnar.

32
Svo þrjár vikur eyktinni á
ýtar reru hraustir
en súða blikinn lasta lá
lenti kvikur skeri hjá.

[nmgr. höfundar] 1 eikt, 3 klukkutímar [viku sjávar á eyktinni segja heimildirnar, ekki þrjár]

33
Fugli saman sópa á ný,
svo var hann þar spakur,
viður ama allan frí
eins og tamur væri því.

34
Renna vöðum réðu í sjá
rekkar eina viður,
drógu hröðu þegnar þá
þorsk úr tröðum síldar blá.

35
Frí af grandi fyrðar hvar
fiskinn nógan drógu
svo við landið mastra mar
meiðar randa lentu þar.

36
Köstuðu stjóra í steinbítsrann
sterkir viðir fleina,
ufsa kóri á með sann
öldu jórin fljóta vann.

37
Yfirsjón var þeirra þá:
þeir með ekki tóku
festi ljóni lægis frá
landið gróna nú upp á.

38
Náði bláa brimrótið
blakkinn ráa taka,
eyju frá um ýsu mið
ýtar fá að staldra við.

39
Bræður eflaust öldu hest
undan reka sáu,
drengi tefur mæðan mest
mörgum hefur yfirsést.

40
Uppi stóðu allslausir
eyjar þar á svæði
tjarnar glóða týrarnir
talsvert móði harmþrungnir.

41
Ítar sáu ei nema
opinn dauða fyrir
en runnur knái Ránsglóða
rímu sjái endaða.

[Þriðja ríma kemur hér: https://skulipals.blog/2023/02/27/rimur-af-hvanndalsbraedrum-thridja-rima/]



Færðu inn athugasemd

Skúli töframaður

Íbúi alheimsins ættaður úr Kópavogi.

Hitt bloggið mitt: https://skulipals.blogspot.com/

Newsletter